Kraftar náttúrunnar
Leiðsöguferð um Vestmannaeyjar ásamt útsýnisflugi yfir suðvestur hluta Íslands.
Flogið er til Vestmannaeyja þar sem tekið er á móti fólki á Flugvellinum. Farþegar fá leiðsögn um áhugaverða staði á Heimaey, þar sem stórfengleg náttúra og fjölskrúðugt dýralíf eru við hvert fótmál. Farið er með rútu frá flugvellinum um bæinn og skoðaðar eru leifar eldgossins í eynni og kíkt á stærstu lundabyggð heims við Stórhöfða. Flugvélin bíður á meðan. Að Vestmannaeyjum loknum er farið í magnaða útsýnisferð þar sem flogið er framhjá Tindafjallajökli og Eyjafjallajökli. Flogið er yfir Heklu, sem er eitt þekktasta eldfjall heims og er enn virk, gaus síðast árið 2000. Í Heimaey má enn sjá ummerki um eldgosið 1973. Til suðurs er Surtsey sem varð til í eldgosi neðansjávar árið 1963. Aðrir athyglisverðir staðir á flugleiðinni eru t.d. Þingvellir, Gullfoss og Geysir.
Verð: € 295
Lengd: 4,5 - 5 klst.
Fjöldi farþega: 4 manns lágmark
Brottför: 7:15 og 12:15
Árstíð: Allt árið


