Dagsferð til Grænlands

Ógleymanleg ævintýraför til einnar afskekktustu byggðar við N-Atlantshaf.

image Náttúrufegurð Grænlands er einstök og ógurleg. Kulusuk er fámennt þorp á austurströnd Grænlands, við Ammasalikfjörð. Gengið er undir leiðsögn um þorpið og í boði er bátsferð til baka í átt til flugvallarins. Borgarísjakar lóna á sjónum og stálgrá fjöllin og snjór umlykja allt. Ógleymanlegt ævintýri í lítið þorp á stærstu eyju jarðar!.

 Senda fyrirspurn

Verð: Hafðu samband
Lengd: 8 klst.
Brottför: kl. 9:00
Árstíð: Allt árið