Sjáðu landið með augum arnarins
Í þægilegum vélum bjóðum við upp á ógleymanlegt útsýnisflug sem sniðið er að óskum hvers og eins jafnhliða skipulögðum ferðum. Útsýnisflug um landið er tilvalin leið til að hafa ofan af fyrir erlendum viðskiptavinum og samstarfsaðilum er sækja landið heim þar sem margbrotið landslagið er í aðalhlutverki. Í slíkar ferðir má flétta inn mat og drykk, gönguferðir, hestaferðir, jeppaferðir eða hverju því sem hugurinn girnist.
Útsýnisflug
Útsýnisflug er fyrir alla þá sem hafa áhuga á að sjá okkar stórbrotna land úr lofti. Við bjóðum skipulagðar flugferðir allt frá 30 mínútna flugi yfir höfuðborgarsvæðið til flugs yfir einstakt svæði suðvestur lands.
Eldfjöll og jöklar- Kraftar náttúrunnar
- Snæfellsnes Peninsula
- by Air and Sea - Reykjavík og nágrenni
- Söguferð um Vestmannaeyjar
Dagsferðir
Skipulagðar dagsferðir yfir sumartímann þar sem við blöndum saman flugi og ferðum á áfangastað er ævintýraleg upplifun fyrir alla þá sem hafa gaman af útivist og ævintýri.
Ævintýraferð - Sérsniðin að þínum óskum
Við bjóðum margvíslegar ævintýraferðir hvert á land sem er. Þú kemur með þína hugmynd og við búum til sérsniðna ferð í samráði við þig. Meira...


