Gæði og öryggi
Flugfélagið Ernir Air hefur flugrekstrarleyfi JAR OPS 1 (flugrekstur) og JAR 145 (viðhald), í samræmi við alþjóðlegar kröfur Flugöryggisstofnunar Evrópu (Joint Aviation Authorities JAA) og Flugmálastjórnar Íslands.
Flugrekstrarskírteini og flugrekendaleyfi félagsins byggja á því að innan félagsins sé hæft starfsfólk, viðeigandi búnaður, aðstaða, flugvélakostur, viðhaldskerfi auk fullnægjandi fjárhagslegs styrks. Í flugrekstrarhandbókum félagsins, sem samþykktar hafa verið af Flugmálastjórn Íslands, er lýst nákvæmlega starfsháttum félagsins á öllum sviðum í samræmi við ofangreindar kröfur.
Leyfisveiting á grundvelli JAR OPS 1 og JAR 145 staðfestir að innan félagsins sé til staðar stjórnskipulag þar sem lögð er megináhersla á flugöryggi með virku gæðaeftirliti sem fylgist með því að starfsemi félagsins sé í alla staði í samræmi við flugrekstrarhandbækur, reglugerðir og lög hvort heldur Evrópu- eða landslög.
Í rekstri flugfélagsins er lögð sérstök áhersla á að þjálfun flugmanna sé eins og best verður á kosið. Flugmenn félagsins búa yfir mikilli reynslu í flugi smærri sem og stærri véla, við fjölbreyttar aðstæður um allan heim.

