Áhafnaskipti & starfsmannaflug

Ernir býður útgerðum, verktakafyrirtækjum, stofnunum og öðrum fyrirtækjum, upp á leiguflug með starfsmenn þeirra milli staða. Viljirðu spara tíma og fyrirhöfn þá er leiguflug með Erni góður kostur. Í sumum tilfellum getur vélin beðið á meðan verk er unnið eða fundum lokið. Getum lent á stuttum flugbrautum á flestum smærri flugvöllum.