Kraftar Náttúrunnar
Leiðsöguferð um Vestmannaeyjar ásamt útsýnisflugi yfir suðvestur hluta Íslands.
Flogið
er til Vestmannaeyja þar sem tekið er á móti fólki á Flugvellinum. Farþegar
fá leiðsögn um áhugaverða staði á Heimaey, þar sem stórfengleg náttúra og
fjölskrúðugt dýralíf eru við hvert fótmál. Farið er með rútu frá
flugvellinum um bæinn og skoðaðar eru leifar eldgossins í eynni og kíkt á
stærstu lundabyggð heims við Stórhöfða. Flugvélin bíður á meðan. Að
Vestmannaeyjum loknum er farið í magnaða útsýnisferð þar sem flogið er
framhjá Tindafjallajökli og Eyjafjallajökli. Flogið er yfir Heklu, sem er
eitt þekktasta eldfjall heims og er enn virk, gaus síðast árið 2000. Í
Heimaey má enn sjá ummerki um eldgosið 1973. Til suðurs er Surtsey sem varð
til í eldgosi neðansjávar árið 1963. Aðrir athyglisverðir staðir á
flugleiðinni eru t.d. Þingvellir, Gullfoss og Geysir.
Check availability
Verð:
€ 350
Fjöldi farþega:
4 manns lágmark
Lengd:
4:50 - 5:00 klst.
Brottför:
12:15
Árstíð:
Allt árið