Flugfrakt
Flugfrakt Ernis er mjög hagkvæmur kostur og kemst til skila fljótt og örugglega. Við flytjum bréf, litla pakka, stóra pakka, varahluti og nánast allt sem rúmast í vélum okkar. Hægt er að koma með frakt á opnunartíma skrifstofu og starfstöðva.
Við bjóðum íbúum Vesturbyggðar að sækja og senda frakt heim að dyrum. Aðeins eitt símtal og við komum og sækjum frakt sem þarf að komast í flug.

